Skiptimarkaður.is

Forsíða
Miðlarinn  |  Þitt álit | Hafðu samband  |  Um fyrirtækið  |  Skilmálar
Smelltu hér til að fela þennan hluta síðunnar! Innskráning
Smelltu hér til að fela þennan hluta síðunnar! Notendatenglar
Veftré

Skilmálar

  1. Aðgangur að skiptimarkadur.is. er ekki seldur. skiptimarkadur.is. er fyrir notaða hluti og auglýsir ekki þjónustu eða nýjar vörur.  Aðgangurinn er skráður á einstakling og skráð með hans kennitölu, auglýsingar sem hann setur inn "til skipta" skulu eingöngu vera um notaða hluti sem hann er löglegur eigandi að, en það sem hann óskar eftir í skráningunni "óskast" má vera allt sem viðkemur þeim yfirflokki sem hann er auglýsandi í. Auglýsanda er ekki heimilt að setja inn efni á sínum aðgangi fyrir aðra en sjálfan sig.
  2. Ekki er leyfilegt að setja upplýsingar um eiganda, tengiliði, símanúmer, e-mail, eða tengla í aðrar vefsíður í auglýsingatextann, upplýsingar um eigandann ásamt símanúmeri hans koma undir hverja auglýsingu sjálfkrafa og eru eins á öllum auglýsingum sem sami einstaklingur setur inn á sínum aðgangi. Þeim upplýsingum getur notandinn breitt þegar hann er orðinn innskráður á vefinn undir "persónuupplýsingar" og breytast þá á öllum auglýsingum hans samtímis. Til dæmis ef breytt er um símanúmer eða staðsetningu.
  3. Texti auglýsinga "til skipta" skal vera hnitmiðaður og innihalda upplýsingar, svo sem um ástand, aldur, týpu, framleiðanda, notkun, stærð, lit, efni, skiptiverðhugmynd eða verðhugmynd og eða það sem hver maður þarf að vita um hlutinn áður en vill íhuga að skipta. Fátt er leiðinlegra en auglýsing þar sem aðeins stendur "Til skipta Toyota og nánari upplýsingar hjá eiganda". Þess háttar auglýsingar eru eingöngu til að gera vefinn leiðinlegan og óþarfi að láta marga hringja til að fá sömu upplýsingarnar sem þegar geta verið í textanum.
  4. Stjórnendum skiptimarkadur.is er heimilt að eyða út auglýsingum sem brjóta gegn almennum siðareglum eða þessum skilmálum. Ef í auglýsingum finnst klámfengið efni eða ljótt orðbragð verða þær auglýsingar fjarlægðar og viðkomandi eiganda gerð áminning eða útilokaður frá frekari notkun, allt eftir eðli málsins hverju sinni.
  5. Stjórnendum skiptimarkadur.is er heimilt að útiloka notendur sem brjóta ítrekað þessa skilmála og neita þeim um frekari viðskipti. Komi í ljós að aðili er að nota annarra aðgang, eða geri tilraun til að fá aðgang á annarra kennitölu en sinni eigin, mun skiptimarkadur.is gefa öðrum notendum vefsins upplýsingar um það svo þeir megi vara sig á viðkomandi. Ef kvartað er yfir notanda vegna óheiðarlegra viðskipta eða tilrauna til svika við aðra notendur vefsins á viðkomandi á hættu að verða útilokaður frá auglýsingum. Notendum er bent á að senda tölvupóst til ovideigandi@skiptimarkadur.is ef þeim finnst texti eða auglýsingamynd óviðeigandi og eða ef vitneskja er um að sá sem auglýsir er ekki sá sem skráður er við auglýsinguna. Þetta er helsta leiðin til að skiptimarkadur.is geti gengið áfram og verið nothæfur fyrir þá sem hann vilja nota.
  6. Stjórnendum skiptimarkadur.is er heimilt (en ekki skylt) að laga augljósar stafsetninga- og málfræðivillur í fyrirsögn eða texta auglýsinga sem almennir notendur birta á vefnum.
  7. Bannað er að auglýsa í flokkum sem eiga ekkert skylt við innihald auglýsingarinnar, og auglýsing skal aðeins vera birt í einum flokki. Sama auglýsingin, eða auglýsing um sama efni sem virk verður samtímis í öðrum flokkum verða fjarlægðar og auglýsandinn hefur þá brotið gegn þessum skilmála og getur átt von á að verða útilokaður frá frekari notkun á auglýsingavef skiptimarkadur.is. Fjöldi auglýsinga á hvern notanda verða að hámarki 10 auglýsingar í einu virkar á vefnum til að byrja með og hægt að fá þeim fjölgað bendi allt til að skilmálunum sé franmfylgt . Notendum er skylt að lesa og samþykkja notkunarreglur skiptimarkadur.is áður en byrjað er að setja inn auglýsingar.
  8. Hægt er að setja inn eina mynd með auglýsingu sem verður í staðlaðri stærð hjá skiptimarkadur.is. Myndin birtist í smækkaðri útgáfu við auglýsinguna, og hægt er að smella á myndina og þá sést stærri mynd í sér ramma. skiptimarkadur.is mælir með að menn noti þennan möguleika þar sem það hefur sýnt sig að þær auglýsingar sem hafa mynd eru skoðaðar mun oftar en myndlausar auglýsingar. skiptimarkadur.is býður einnig upp á myndaalbúm með auglýsingum og verður samið sérstaklega um þann möguleika.
  9. Notendum er skylt að lesa og samþykkja skilmála skiptimarkadur.is áður en vefaðgangur er keyptur. skiptimarkadur.is ber enga ábyrgð á hlutum eða auglýsingum á vef skiptimarkadur.is, eða gerðum einstakra notenda vefsins. skiptimarkadur.is áskilur sér fullan rétt til að laga, breyta og bæta við skilmála ef þörf krefur án fyrirvara. Þeir sem ekki vilja fara eftir þessum skilmálum er bent á að snúa sér strax að öðrum vef til að auglýsa á. Hinir sem byrja hér en fást ekki til að halda sig innan rammans verða settir af og fá ekki að halda áfram að auglýsa.  Þeir fáu einstaklingar sem ekki hafa fengið að auglýsa á skiptimarkadur.is hingað til eða verið útilokaðir, fá ekki frekari aðgang núna eða síðar. skiptimarkadur.is mun ekki takmarka auglýsingar á hvern einstakling til að byrja með, ef efnið sem auglýst er er örugglega hans eign og samræmist skilmálunum að öðru leiti. Þessi fjöldi, 10 auglýsingar, er settur til að geta takmarkað þá sem með einum eða öðrum hætti komast framhjá skilmálunum og finna smugu til að setja inn efni sem skiptimarkadur.is telur ekki eiga erindi á vefinn eða á annan hátt kannski ekki eign viðkomandi en sannast ekki með nokkru móti. skiptimarkadur.is er fyrir notaða hluti og auglýsir ekki þjónustu eða nýjar vörur.